Sýni 1–12 af 16 niðurstöðum
Kastali við Ísafjarðardjúp, Ísland
Kastalinn við Ísafjarðardjúp, mynd frá 2025.
Kastalinn við Ísafjarðardjúp hefur einhvern tíma verið reisulegur. Hann er byggður kringum 1934. Húsbyggingin var svo kostnaðarsöm að hún ýtti undir gjaldþrot hins litla kaupfélags sem var á staðnum. 1967 komst húsið í nýjar hendur og aftur 2011 en nú síðast, 2025 er það komið í hendur afkomenda húsbyggjandans að því er ég best veit. Þetta hefur auðvitað verið stórglæsilegt hús og óskandi að hægt verði að gera einhverjar lágmarkslagfæringar til að gera húsið fallegra en sennilega verður aldrei hægt að búa í því.