Dr. Anna Elísabet – um mig:
Ég er áhugasöm um náttúruna og lífið. Elska að taka myndir af stórbrotnu landslagi, okkar stóru og smáu dýrum og fuglum og öðru fögru sem náttúran hefur uppá að bjóða.
Fræðilegur bakgrunnur minn er þó úr heimi vísindanna, ekki síst því er lítur að heilsu og líðan fólks. Ég er með doktorsgráðu í lýðheilsu, M.Sc gráðu í næringarfræði og BA gráðu í matvælafræði. Auk þess er ég með MBA gráðu sem hefur nýst mér vel þegar ég hef leitt fyrirtæki af ólíkum gerðum; svo sem forstjóri Lýðheilsustöðvar Íslands, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst á Íslandi og framkvæmdastjóri Tanzanice Farm – fyrirtækis sem ég stofnaði og rak í tæp 14 ár í norður Tansaníu. Þá stofnaði ég félagasamtökin Women Power sem hafa það að markmiði að mennta og þjálfa konur í efnalitlum byggðum.